Verslunarstjóri kjörbúðar KVH Jenný Duch sagði upp störfum hjá Kaupfélaginu um mitt sumar og hefur hún nú látið af störfum eftir allmörg ár í starfi.
Stjórn KVH og starfsfólkið allt þakkar Jenný samstarfið og óskar henni alls hins besta í komandi verkefnum og í öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni. Takk fyrir árin öll kæra Jenný.
Stjórn og starfsfólk KVH
Ljósmynd: Juanjo Ivaldi Zaldivar