Mottumarssokkarnir eru komnir í KVH.

Mottumarssokkarnir í ár eru hannaðir af Berglindi Häsler, ekkju Svavars Péturs og eiganda Havarí, í samstarfi við Björn Þór Björnsson (Bobby Breiðholt).
Björn hefur undanfarin ár tekið að sér að viðhalda safni myndrænna sköpunarverka Svavars Péturs sem lést úr krabbameini árið 2022.
Svavar Pétur var best þekktur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló.

Hönnunin byggir á kórónunni sem var hans helsta og íkonískasta tákn.

Nældu þér í par af Mottumarssokkum og leggðu þannig starfsemi Krabbameinsfélagsins lið,sokkarnir eru í sölu bæði í kjörbúð og byggingarvörudeild KVH.

Sjáumst !