Sonett vörurnar mættar í KVH

Við erum ánægð með að ýta undir vistvænni lífstíl og eru hreinlætisvörur frá Sonett nú komnar í hillur KVH.

Sonett vörurnar eru vottaðar mildar sápur og hreinsiefni. Þær brotna 100% niður í náttúrunni ásamt því að vernda náttúrulegar vatnsauðlindir sem eru undirstaða lífs. Hráefnin eru unnin úr jurtum og steinefnum og innihalda engin ensími.

Hægt er að lesa sér til um vörurnar á www.sonett.is og við munum svo bjóða uppá áfyllingar á þeim vörum þar sem það er í boði. Við erum ekki með alveg alla vörulínuna frá þeim en meirihlutann samt. Ef það er eitthvað sem ykkur vantar en finnið ekki í hillunum þá endilega heyrið í okkur og við pöntum það fyrir ykkur.

Við bjóðum Sonett vörulínuna velkomna í hreingerninga flóruna hjá KVH.